Monthly Archive: júlí 2014

Molar um málfar og miðla 1521

Úr frétt á mbl.is (16.07.2014): Kon­an var vistuð í fanga­geymslu vegna máls­ins sem og vegna ölv­un­ar­ástands. Vegna ölvunarástands? Var það ekki vegna ölvunar?   Í hádegisfréttum Bylgjunnar (16.07.2014) var sagt að fullorðið fólk hefði verið bjargað. Fullorðnu fólki var bjargað.   Lagt er til að Ríkisútvarpið freisti þess að ná samningum við norska sjónvarpið NRK …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1520

Síðastliðinn nóvember sluppu nærri tvö hundruð fullvaxta laxar úr sláturkví … segir í DV bls. 4 (15.-17.07 2014). Klúðurslegt orðalag. Betra hefði verið; í nóvember síðastliðnum eða í nóvember í fyrra. Ekkert væri hinsvegar athugavert við að segja, – Síðastliðinn nóvember var kaldari en í meðal ári …  Og hvað eru fullvaxta laxar? Fleira var …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1519

  KÞ bendir á þessa frétt á dv.is (13.07.2014): https://www.dv.is/lifsstill/2014/7/13/kuldi-veldur-ekki-kvefi/ Hann spyr; ,,Það er vissulega jákvætt að leitast við að fræða fólk. Hvort skyldi það nú vera baktería eða veira sem veldur kvefi?”. Molaskrifari þakkar ábendinguna.   Nú, þegar fótboltanum linnir, fáum við danska þætti um kökubakstur og eftirréttagerð (15.07.2014). Það gerir ekki endasleppt við …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1518

Í hádegisfréttum Ríkisútvarps á laugardag (12.07.2014) sagði fréttamaður:,,Forsætisráðherra segir að ekki veitir af að ….” Hefði átt að vera: Forsætisráðherra segir að ekki veiti af að ….”   Sérkennileg og illskiljanleg mistök ritara Reykjavíkurbréfs í sunnudags mogga (13.07.2014) verða sjálfsagt lengi í minnum höfð.. Bréfritari eignaði umboðsmanni Alþingis undarlega ritsmíð, sem dreift hafði verið í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1517

  Gamalreyndur blaðamaður og kollega skrifaði (12.07.2014): ,,Sæll og blessaður, félagi. Enn og aftur vaða meðlimir uppi í fréttum. Sýnist þeim hafa fjölgað ískyggilega upp á síðkastið. Hvar eru nú orðin félagi, skipverji, flugliði og öll þessi fallegu orð sem hægt er að nota. Get ekki að því gert að þetta orðskrípi veldur mér hrolli …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1516

  Molaskrifari heyrði í Sumarglugganum á Rás eitt í Ríkisútvarpinu (þar sem oft er áhugavert efni) eldsnemma á föstudagsmorgni (11.07.2014) að Íslensku safnaverðlaunin yrðu afhent á sunnudaginn kemur, 13. júlí. Hélt að sér væri farið að förlast. Vissi ekki betur en þessi virðulegu verðlaunin hefðu verið afhent við hátíðlega athöfn á sunnudaginn var (06.07.2014) og …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1515

Málglöggur Molalesandi sendi eftirfarandi: Á textavarpi Ríkisútvarpsins hefur eftirfarandi staðið, það sem af er degi (10.07.2014) Hér er talað um á í fleirtölu eignarfalli sem ánar. Þetta er tvítekið í þessari stuttu frétt, svo varla er þetta innsláttarvilla. ,,Fólk haldi sig frá Múlakvísl. Óvissustig er enn í gildi fyrir Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi. Lögregla og almannavarnir ráðleggja ferðafólki …

Lesa meira »

Heiður þeim sem heiður ber?

Grein sem birtist í Fréttablaðinu 10. júlí 2014: Alltaf er það gott þegar  fólk er heiðrað að verðleikum fyrir  vel unnin störf og afrek á lífsleiðinni.   Snemma í maí var frá því greint í Morgunblaðinu  (02.05.2014) að American Scandinavian Foundation , sem eru eins og blaðið segir ,,aðalsamtök fólks af norrænum uppruna í Bandaríkjunum” …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1514

  Enginn sammála um ágæti Costco, segir í feitletraðri fjögurra dálka fyrirsögn í DV (8.-10.07.2014). Molaskrifara finnst þessi fyrirsögn ekki í lagi. Finnst að hér sé hugsanavilla á ferð. Betra hefði verið, til dæmis: Enginn einhugur um ágæti Costco. Hvað segja Molalesendur?   Pétur Kristjánsson skrifari Molum (09.07.2014): ,,Eitt aðaleinkenni á íslensku talmáli er að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1513

Molavin skrifaði: ,,Í frétt DV (07.07.14) um eggjasósufyrirtækið Gunnars Majónes segir svo: „Síðan þá hefur sigið á ógæfuhliðina og er kennitala fyrirtækisins nú komin í þrot.“ Þetta er ekki aðeins rangt heldur mjög villandi. Kennitala hefur engan rekstur. Það er fyrirtækið, sem er komið í þrot. Það var stofnað nýtt fyrirtæki, sem fékk að sjálfsögðu …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts