Þegar ferjan fór að halla ískyggilega, var sagt í hádegisfréttum Bylgjunnar (11.11.2014). Betra hefði verið: Þegar ferjunni fór að hall ískyggilega, eða þegar ferjan fékk ískyggilega mikla slagsíðu. Í sama fréttatíma var sagt: Yfirgnæfandi hluti félagsmanna kaus með verkfallsaðgerðum … Betra hefði verið: Yfirgnæfandi hluti félagsmanna greiddi atkvæði með verkfallsaðgerðum … T.H. sendi eftirfarandi …