Monthly Archive: október 2014

Molar um málfar og miðla 1605

  Áskell skrifaði (28.10,.2014): ,,Í frétt á mbl.is segir í upphafi að Ísland sé í „…fyrsta sæti á lista World Economic For­um líkt og und­an­far­in ár…“ En hvað er World Economic Forum? Ég skil orðin en þekki ekki fyrirbærið. Án efa lýsir það umtalsverðum þekkingarskorti en þá verður svo að vera. Ef ýtt er á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1604

Rafn skrifaði (29.10.2014): ,,Í mola nr. 1603 er vikið að enskuslettunni „tax free“ og mis- og ofnotkun hennar. Ofan á þessa mis- og ofnotkun bætist, að notendur slettunnar virðast alls ekki skilja þá slettu, sem þeir eru þó að nota. Samkvæmt almennum málskilningi er „tax free“ notað um verð án virðisaukaskatts, það er um verð …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1603

  Af mbl.is (25.10.2014): ,,Val­hnet­ur í Kína hafa hækkað gríðarlega í verði und­an­far­in ár og er svo komið að kíló af val­hnet­um kost­ar meira en kíló af gulli. Í mörg ár hef­ur hnet­an táknað vel­meg­un og vel­gengni”. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/10/25/vist_vaxa_peningar_a_trjanum/ Hér hefur ef til vill eitthvað skolast til. Á netinu má sjá að eitt kíló af gulli …

Lesa meira »

Áhugaverður fyrirlestur um stjórnmálasögu á föstudaginn

Föstudaginn 31. október mun Dr. Ragnheiður Kristjánsdóttir sagnfræðingur flytja fyrirlestur á vegum Bókmenntafélags jafnaðarmanna.  Fyrirlesturinn kallar hún: ,,Litli bróðir á Íslandi. Um Alþýðuflokkinn á mótunarárum íslenska flokkakerfisins, 1916-1944” –   Fyrirlesturinn verður  á Kornhlöðuloftinu við Lækjarbrekku við Bankastræti og hefst kl. 12:00. Að loknum fyrirlestri er gert ráð fyrir fyrirspurnum og umræðum. Boðið verður upp á léttan …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1602

  Fyrrverandi kollega skrifaði (26.10.2014): ,,Við dagleg fréttaskrif er mikil hætta á því að menn festi sig í alls kyns vondu málfari, sem síðan gengur aftur og aftur eins og illvígur draugur. Því er mikilvægt að reglulega séu fréttir skoðaðar af þar til bæru fólki, sem síðan bendir fréttamönnum á hvað betur mætti fara. Þarna …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1601

  Ná sátt um jarðaför Palestínumanns, sagði í fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (26.10.2014) http://www.ruv.is/frett/na-satt-um-jardafor-palestinumanns Orðið jarðaför var einnig notað í meginmáli fréttarinnar. Þetta var því ekki innsláttarvilla. Heldur vankunáttuvilla. Þarna hefði átt að tala um jarðarför. Færeyingar tala um jarðarferð, útför   Taktleysi og ósmekkvísi stjórnenda Hraðfréttaþáttar Ríkissjónvarpsins á föstudagskvöld (24.10.2014) kristallaðist í kirkjugarðsatriðinu sem …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1600

Það var eitt og annað athugavert við málfar i  eftirfarandi frétt af vef Ríkisútvarpsins (22.10.2014) um deilur vegna skipsins Fernöndu sem eldur kom upp í fyrir um ári. Landhelgisgæslan bjargaði áhöfninni frækilega  og skipið var dregið til hafnar. Það var síðan bútað niður í brotajárn. http://www.ruv.is/frett/faer-ekki-130-milljonir-vegna-fernondu Fréttin var lesin í seinni fréttum sjónvarps á miðvikudagskvöld. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1599

  Molavin sendi eftirfarandi (21.10.2014) : „Ekki liggur ljóst fyrir hversu háar upphæðir maðurinn er talinn hafa stungið undan.“ Þetta er úr Vísisfrétt 21.10.2014. Dæmi af þessu tagi, þar sem fréttamenn kunna ekki að beita einföldustu beygingarreglum, má finna daglega í fjölmiðlum. Þarna ætti vitaskuld að standa: „…hversu háum upphæðum…“ Enn betra væri að segja …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1598

  K.Þ. skrifaði (20.10.2014): ,,Ég var að lesa blogg: http://jonmagnusson.blog.is/blog/jonmagnusson/entry/1477456/ Þessi texti vakti athygli mína: „Sigmundi hefur allt frá því að kjósendur í Norðausturkjördæmi sýndu honum þann sóma að kjósa hann þingmann sinn fundist að æ sé gjöf til gjalda.“ Hvernig er annars þetta máltæki? Ég hélt að það væri „Æ sér gjöf til gjalda“ …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1597

  Molavin skrifaði (19.10.2014) : „Stærstum hluta þeirra, sem hættu (í framhaldsskólum)…“ sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 (17.10.2014). Hér væri ekki aðeins réttara heldur einnig skýrara mál að segja: Flestir þeirra, sem hættu. Þetta er ekki beinlínis dæmi um rangt mál (en þó villandi) en samt vinsamleg ábending um að fréttamenn þurfi að hugsa áður …

Lesa meira »

Older posts «