Sigurður Hreiðar skrifaði (07.02.2015): ,,Eiður — gaman væri ef þú vildir mola þessa ambögu, — sem dynur nú á okkur frá Forlaginu í öllum miðlum , – um eitthvað sem sé ávanabindandi. Vanabindandi hefur dugað hingað til.” Molaskrifari þakkar ábendinguna. Vonandi lesa Forlagsmenn þetta. Vandvirknin var ekki allsráðandi í morgunfréttatímum Ríkisútvarpsins klukkan sjö og …
Molar um málfar og miðla 1670
Í Fréttablaðinu (05.02.2015) segir: ,, Félagarnir eru væntanlegir heim á föstudaginn og hafa þá farið umhverfis heiminn á fimm dögum”. Málvenja er á íslensku að tala um að fara umhverfis jörðina, ekki umhverfis heiminn. K.Þ. benti á eftirfarandi (07.02.2105):,, „Ég held að við höfum sofið fljótandi að feigðarósi í þessum málaflokki,“ sagði Guðlaugur Þór …
Molar um málfar og miðla 1669
Molavin skrifaði: ,, Í sjónvarpsgagnrýni Morgunblaðsins í dag, 5.2.2015, er sagt að sjónvarpsleikkonan Sofie Gråbøl leiki lögregluforingja í nýrri sjónvarpsþáttaseríu, Fortitude, sem tekin er að mestu á Íslandi, en á að gerast á Svalbarða. Hér er hins vegar um að ræða embætti sýslumanns á Svalbarða, en það heitir á ensku „governor“. Einföld leit með …
Molar um málfar og miðla 1668
Molaskrifara gengur illa að fella sig við orðalagið, að eitthvað hafi gerst eða verið svona og svona síðasta sumar. Þetta orðalag var notað í fréttum Ríkisútvarps (04.02.2015) klukkan sjö að morgni. Og í fleiri fréttatímum, reyndar. Olíuverð hefur fallið mikið frá því síðasta sumar. Hvað er að því að segja í fyrra sumar? Hefur verið …
Molar um málfar og miðla 1667
Hildur skrifaði (02.02.2015): ,,Sæll Eiður, Takk fyrir að vera sífellt á vaktinni! Oft les ég það sem þú ert að skrifa en ekki alltaf, man ég t.d. ekki hvort þú hefur fjallað um atriði sem fara mjög fyrir brjóstið á mér. Þ.e. þegar talað er um að eitt og annað gangi vel eða illa …
Molar um málfar og miðla 1666
Þetta er í fyrsta skipti í vetur sem mögulegt er að opna Skálafell, var sagt í kvöldfréttum frettum útvarps (31.01.2015). Átt var við opnun skíðasvæðisins í hlíðum Skálafells. Það er galin dagskrárgerð að vera með hálftíma handboltafjas á besta tíma á laugardagskvöldi í Ríkisjónvarpinu. Jaðrar við ósvífni gagnvart þeim tugum þúsunda, sem hafa engan áhuga …
Molar um málfar og miðla 1665
Í frétt um þorrablót Stjörnunnar í Garðabæ á forsíðu Garðapóstsins (29.01.2015) segir: ,, … enda gekk það snuðrulaust fyrir sig …” . Þarna ætti að standa , enda gekk það snurðulaust fyrir sig. Orðbókin segir að snurða sé ,,lítill harður samsnúningur á snúnum þræði, hnökri”. Í afleiddri merkingu er sagt til dæmis að snurða …
Molar um málfar og miðla 1664
Trausti Harðarson vakti athygli á þessari frétt (29.01.2015) á dv.is: http://www.dv.is/frettir/2015/1/29/straeto-bs-breytir-leidakerfinu-nemendur-geta-loksins-maett-rettum-tima/ „Verð með strætó til Reykjavíkur kostar 1.400 kr.-“ Jæja já! Er kannski hægt að kaupa tvö verð í einu? – Ja, hérna. Er nú verðið farið að kosta? Þakka ábendinguna, Trausti. Guðmundur Guðlaugsson skrifaði (29.01.2015): ,,Oft og iðulega heyrist í Ríkisútvarpinu orðalag …
Molar um málfar og miðla 1663
Enn einu sinni var fréttastofa Ríkissjónvarpsins niðurlægð í gærkveldi (28.01.2015). Þá var fréttunum ýtt til hliðar vegna boltaleiks í Katar. Ísland er ekki lengur meðal þátttakenda þar. Fréttastjóri og fréttamenn virðast taka því sem sjálfsögðum hlut að fréttastofan sé niðurlægð, þegar íþróttir eru annars vegar. Molaskrifara finnst hlutskipti fréttastofunnar bágt í þessari þjóðarstofnun þar sem …
Molar um málfar og miðla 1662
Sjónvarpsáhorfandi skrifaði Molum (26.01.2015): ,,Eins og sjálfsagt margir sækist ég eftir því að horfa á Landann í sjónvarpinu og hef talið gott efni. Stundum spillist það. Í kvöld horfði ég á þáttinn, en naut hans ekki af þeirri ástæðu einni, að umsjónarkonan kom ekki máli sínu á framfæri með nægilega skiljanlegum hætti og tapaði …