Molar um málfar og miðla 1642

Úr frétt á mbl.is (23.12.2014): Meðal ann­ars höfnuðu tvö ruðnings­tæki Vega­gerðar­inn­ar út fyr­ir veg og var um veru­legt tjón að ræða á öðru tæk­inu. Ekki kann Molaskrifari vel við orðalagið að hafna út fyrir veg. Ruðningstækin, – snjóplógar eða vörubílar með snjótönn fóru út af , höfnuðu utan vegar.   Stundum eru nefndar hér einkennilegar …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1641

  Þorvaldur sendi eftirfarandi (21.12.2014): ,,Var að lesa frétt í vefmogga um franskan bílstjóra sem ók drukkinn. Fjórum sinnum er í fréttinni sagt að maðurinn hafi klesst á eitt og annað. Ekki lausir við barnamálið enn. Á sömu síðu er sagt af björgun fótbrotins manns úr Esjuhlíðum. Þar segir að skjótum viðbrögðum björgunarliðs hafi verið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1640

Vel yfirstaðnir aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar,er ekki mjög lipurlega samin fyrirsögn í Garðapóstinum (18.12.2014).Líkast til er átt við að tónleikarnir hafi tekist vel, þetta hafi verið góðir tónleikar, sem Molaskrifari efast hreint ekkert um.   Málfar umsjónarmanna í Virkum morgnum á Rás tvö frá dagmálum til hádegis fyrir neðan virðingu Ríkisútvarpsins. Þátturinn er raunar oftar en …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1639

  Molavin skrifaði (17.1.2014): ,, Veiruvarnir gegn vírusum? Frétt á Pressunni (16.12.2014) hefst á þessum orðum: „Þessa stundina breiðist illskeyttur vírus hratt út á Facebook. Veiruvarnarfyrirtæki vinna nú hörðum höndum að því að reyna að stöðva útbreiðslu vírussins…“ Þetta er athyglisvert. Hér er í sömu málsgrein blandað saman enska orðinu vírus og hinni ágætu íslenzku …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1638

Hér er gott dæmi um ísl-ensku, ef þannig má taka til orða. Þetta er af mbl.is (16.12.2014): „Við erum einnig í mjög góðu sam­starfi við Bruna­varn­ir Suður­nesja og störf­um sam­an öxl í öxl í veðrum eins og þessu. Við höf­um einnig verið að aðstoða þá í dag við sjúkra­flutn­inga,“ seg­ir Har­ald­ur sem tel­ur að veðrið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1637

  Furðu lostinn fylgdist Molaskrifari með úttekt Helga Seljans og starfsfélaga hans í Kastljósi í gærkvöldi (16.12.2014) á vafasömum (að ekki sé meira sagt) viðskiptaháttum, sem viðgengist hafa hjá Vegagerðinni. Þetta var Kastljós eins og það á að vera. Takk og hrós. Lá við að maður vorkenndi reyndar vegamálastjóra í viðtalinu í seinni hluta þáttarins. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1636

  Myndbirtingar á vefmiðlum eru stundum kyndugar. Þá fara  stundum viðvaningar í myndasöfn og leita. Oft með lélegum árangri. Á laugardag (13.12.2014) birti mbl.is  frétt um flóttamann, sem beið bana í Englandi. Hann hafði falið sig undir vöruflutningabíl sem fór frá Frakklandi til Englands. Lést ,,þegar hann gerði tilraun til að koma sér út úr …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1635

  Rafn benti á þessa frétt á mbl.is (11.12.2014) og segir: ,,Neðanskráð frétt er í Netmogga núna. Það sem vekur furðu mína er tvennt, annars vegar; hver hefur hagsmuni af að bjarga slysi og tryggja þar með framgang þess? og hins vegar; undan hverju var slysinu forðað? Ég hefði talið eðlilegt að reyna að kæfa …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1634

Ekkert sjóferðaveður næstu daga, var fyrirsögn á mbl.is (09.12.2014). Auðvitað er ekkert rangt við að tala um sjóferðaveður, – þótt málvenja sé að tala um sjóveður. Í fréttinni var talað um að skip og bátar þyrftu að leita skjóls. Málvenja er að tala frekar um að sigla í var eða leita vars, komast á lygnari …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1633

Molavin skrifaði (09.12.2014): ,,Talsverðar umræður hafa átt sér stað á fólksmiðlum að undanförnu um skert framlög skattgreiðenda til Ríkisútvarpsins. Um þá staðreynd verður ekki deilt – en á móti kemur að RUV stendur heldur ekki við sinn hluta samningsins við ríki og skattgreiðendur, sem lögin eru, meðan það sniðgengur skyldur sínar um meðferð íslenskrar tungu. …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts