Í Spegli Ríkisútvarpsins á þriðjudagskvöld (19.08.2014) var talað um að hætta gangnagerð á Gaza. Hefði auðvitað átt að vera gangagerð. Hér var ekki verið að notað fleirtölumyndina göngur. Þetta er einhverskonar áráttuvilla. Heyrist aftur og aftur. Verkefni fyrir málfarsráðunaut sé hann enn á staðnum. Glöggur lesandi benti Molum á þetta á dv.is (19.08.2014) …