AÐ ÚÐA Molavin skrifaði (26.02.2016) :,, Á síðu Ríkisútvarpsins segir í frétt (26.02.2016 – Ásrún Brynja Ingvarsdóttir): „Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um tvo pilta vera að spreyja á húsveggi í vesturbæ Reykjavíkur.“ Ekki er ljóst hvort fréttamaður tekur þetta orðrétt úr tilkynningu lögreglu, þar er margt kynduglega orðað, en vart er …
Monthly Archive: febrúar 2016
Molar um málfar og miðla 1896
BARNAMÁL Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (24.02.2016) sagði fréttamaður: ,, .. og því verður leikurinn pínu sérstakur fyrir hana.”. Ekki tala við okkur á barnamáli í fréttum. Ekki heldur í íþróttafréttum. MEINLOKA Af mbl.is um bíl sem náðist upp úr inntakslóni á hálendinu (24.02.2016): ,,Landsvirkjun lagði áherslu á að ná bílnum upp sem fyrst til að …
Molar um málfar og miðla 1895
KONUR MENTORA KONUR Í morgunþætti Rásar tvö (23.02.2016) var kynntur fyrirhugaður fundur eins og oft er gert , og oft er góð ástæða til. Konan, sem rætt var við, talaði oftar en einu sinni um konur, sem væru að mentora konur. Átti líklega við að konur væru að leiðbeina konum, aðstoða konur. Molaskrifari er ekki …
Molar um málfar og miðla1894
UM TALMÁL , HIKORÐ OG FLEIRA Jón B. Guðlaugsson sendi Molum eftirfarandi bréf: ,, Heill og sæll, Eiður, og þakka þér móðurmálsvarðstöðuna. Mér leika landmunir á að vita hvort þú deilir áhyggjum mínum af þróun íslensks talmáls. Þykir mér svo komið að hátíð megi telja ef einhver viðmælandi / umsjónarmaður/ fréttamaður kemur út úr sér …
Molar um málfar og miðla 1893
EKKI TÝNDUR Hinn týndi Noel stjarnan í nýrri auglýsingu Sigló Hótels, sagði í fyrirsögn á visir.is. Maðurinn var alls ekki týndur . Hann villtist eins og víðfrægt er orðið. Í fréttinni er hann reyndar kallaður heimsfrægur villingur. Í íslensku er orðið villingur ekki notað um þann sem hefur villst af réttri leið. Það er notað …
Molar um málfar og miðla 1892
METNAÐARLEYSIÐ Sigurður Sigurðarson skrifaði Molum (18.02.2016): Sæll, Eftirfarandi frétt er að finna á dv.is þann 18.febrúar 2016. Ótrúlegt en þó satt að einhver sem kallar sig blaðamann fái laun fyrir svona samsetningu. Staglstíllinn er algjör, tvisvar í örstuttri frétt er sagt að maðurinn hafi „kynnt kaffikönnu fyrir heiminum“. Gæti ekki verið að maðurinn hafi hannað þessa mokkakönnu? …
Molar um málfar og miðla 1891
SAMSLÁTTUR Það var ágæt áminning og upprifjun í Máskotinu á Rás tvö á þriðjudag (16.02.2016), þegar málfarsráðunautur ræddi muninn á þegar hér var komið sögu, þá , eða á þeirri stundu og því að koma við sögu, – í merkingunni að eiga aðild að eða taka þátt í. Þetta hefur verið nefnt í Molum …
Molar um málfar og miðla 1890
Á GULLFOSSI ,,Það hljómar kannski ótrúlega ,en þetta er rólegur dagur á Gullfossi”, sagði fréttamaður í Ríkissjónvarpi (14.02.2016). Hann átti við, að ekki hefði verið mikið um ferðamenn austur við Gullfoss þann daginn. Algengt er að heyra talað um að fara á Gullfoss og Geysi. Eðlilegra væri að tala um að fara austur að Gullfossi …
Molar um málfar og miðla 1889
ILLA SKRIFUÐ FRÉTT Sigurður Sigurðarson sendi Molum línu (15.02.2016): ,,Sæll, á vefnum visir.is er illa skrifuð frétt, líklega skrifuð af „fréttabarni“ eins og þú nefnir það stundum „Varaður við húsleit hjá sér af lögreglufulltrúa“. Góður fréttastjóri eða prófarkalesari hefði snúið þessari fyrirsögn við og sagt: Lögreglufulltrúi varaði við húsleit. Í fréttinni segir af lögreglufulltrúa „… sem var …
Molar um málfar og miðla 1888
ENN UM VEÐURORÐ Í Molum var nýlega fjallað um veðurorð. Umhleypingur er oftast notað í fleirtölu um óstöðuga veðráttu með vindum og úrfelli og (oft) með sífelldum breytingum frá frosti til hláku og frá hláku til frosts. Af mbl.is (12.02.2016): ,,Eftir helgina er útlit fyrir talsverðar umhleypingar, og strax á mánudag gengur nokkuð djúp lægð …