Í fréttatíma Stöðvar tvö (05.07.2012) var rætt við roskin bresk systkin sem höfðu siglt út fyrir Vestfirði þar sem faðir þeirra fórst með bresku herskipi í heimsstyrjöldinni síðari. Talað var um rússneska skipalest ,sem er rangt. Þetta var skipalest bandamanna á leið til Rússlands með hergögn og birgðir af ýmsu tagi. Sagt var að skip …
Molar um málfar og miðla 945
Ómar Einarsson sendi eftirfarandi (04.07.2012): Af www.visir.is í dag: http://visir.is/likamar-thotuflugmannanna-fundnir/article/2012120709562 ,,Líkamar þotuflugmannanna fundnir. Líkamar? Væri ekki nær að tala um lík? Hér er um að ræða þýðingu úr ensku og viðkomandi er greinilega ekki með neina tilfinningu fyrir íslensku máli. Spurning hvort blaðamenn verði ekki að lágmarki að hafa tekið eitt námskeið í þýðingum?” Molaskrifari …
Molar um málfar og miðla 944
Í Molum gærdagsins var minnst á samninga og gagnkvæmt traust milli stjórnmálamanna. Molaskrifari var um nokkurra ára skeið þingflokksformaður Alþýðuflokks (sakna hans) sem oft þurfti að semja um framgang og afgreiðslu mála við pólitíska andstæðinga og samherja. Í mínum flokki var þá stundum uppi það sjónarmið að enginn samningur væri ásættanlegur nema fallist væri á …
Molar um málfar og miðla 943
Það er skynsamlegt hjá Sjálfstæðismönnum að ætla í sumar að semja tillögur um stjórnarskrárbreytingar sem miða að því að afmarka og skýra valdsvið og verkefni forseta Íslands eins og Birgir Ármannsson alþingismaður greindi frá í fréttum Ríkissjónvarps í kvöld. (02.07.2012). Þetta er ekki aðeins skynsamlegt að gera, heldur bráðnauðsynlegt í ljósi margvíslegra ummæla Ólafs Ragnars …
Molar um málfar og miðla 942
Lesandi sendi þessa frétt af pressunni (27.06.2012):” Í frétt á Pressunni segir að lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri og erlendri mynt eru Baa3 en P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Einnig kemur fram að í febrúar hafi Fitch hækkað einkunnir ríkissjóðs fyrir skuldbindingar í erlendri mynt úr BB+/B í BBB-/F3. Ég játa það fúslega að ég hafði …
Molar um málfar og miðla 941
Eftir hálftíma framlengingu og vítaspyrnukeppni (24.06.20129 hefði Ríkissjónvarpið átt að stytta eða helst af öllu sleppa innantómu fótboltafimbulfambi ,,sérfræðinganna” á sunnudagskvöld. Það var ekki gert. Fótbolti hefur algjöran forgang hjá þeim sem stýra dagskrá nauðungarsjónvarpsins í Efstaleiti . Áskell sendi eftirfarandi (24.06.2012): ,, Pressan sagði: „Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur, en hann …
Molar um málfar og miðla 940
Dv.is vitnar í Andreu Ólafsdóttur forsetaframbjóðanda (23.06.2012) sem segir: ,,Ég er ekki að fara að vinna þessar kosningar – það er alveg ljóst.“-En hvers vegna vill hún þá halda áfram? „Ég vil bara taka þetta til enda …” Þetta hefði frambjóðandinn að skaðlausu mátt orða betur. Miklu betur. Málglöggur molalesandi segir í tölvubréfi (22.06.2012): „Það …
Molar um málfar og miðla 939
Anderson heldur tvo tónleika í Hörpu … , sagði fréttamaður Stöðvar tvö (20.06.2012). Orðið tónleikar er fleirtöluorð. Þessvegna hefði átt að tala um tvenna tónleika, ekki tvo tónleika. Þetta er í rauninni sáraeinfalt en vefst engu að síður fyrir mörgum fréttaskrifurum. Mikilvægt er að farið sé rétt með orðtök. Í frétt frá Akureyri …
Molar um málfar og miðla 938
Þeir misstu mann í meiðsli og það dró úr kreatívitetinu á miðjunni … hann er mjög kreatívur. Svona tala þeir stundum (21.06.2012) sem úða speki og snilld á hlustendur úr stássstofu Ríkissjónvarpsins sem kölluð er EM stofa. Molalesandi sendi eftirfarandi (20.06.2012): Nú er það þannig að ég heyri orðið mjög lítið og stóla því …
Molar um málfar og miðla 937
Fótboltafíknir stjórendur í Efstaleiti misbeita valdi sínu gagnvart viðskiptavinum Ríkisútvarpsins. Í gær var endursýndur gamall fótboltaleikur, áfram skert fréttaþjónusta og ekkert Kastljós. Hve lengi á þetta að viðgangast? Hvað segir stjórn Ríkisútvarpsins? Hverju stjórnar stjórn Ríkisútvarpsins ohf ? Ekki stjórnendum þessa almannafyrirtækisins , – svo mikið er víst. Molalesandi þakkar fyrir Molana sem hann segist …