Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, er stórkostleg söngkona, – og manneskja. Þáttur Jónasar Sen um hana í Ríkissjónvarpinu var prýðilegur og lofar góðu um þá sjö þætti í þessari þáttaröð, Átta raddir, sem við eigum eftir að sjá og heyra. Það var rétt, sem Margrét Bóasdóttir sagði, að Sjónvarpið gerði mikið fyrir sönglistina á sínum fyrstu árum. …