Athyglisverð ummæli voru á forsíðu Fréttablaðsins á þriðjudag (11.01.2011). Þar var frá því að sagt, að tveir listamenn, leikstjóri og leikari, Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson, ætluðu að gera sjónvarpsþætti, sjö þátta flokk, byggðan á Íslandsklukkunni. Þættirnir verða boðnir Stöð tvö. Benedikt segir orðrétt við Fréttablaðið: „Við ætlum að sýna þættina á sjónvarpsstöð, sem sýnir leikið …