Eftirfarandi bréf barst Molum frá Einari Kr. Jónssyni vegna fréttar á mbl.is (05.01.2012): „Rétt tæplega 200 skjálftar voru staðsettir af jarðskjálftasviði Veðurstofu Íslands í síðustu viku ársins 2011. Langflestir þeirra litlir. Langflestir skjálftarnir sem mældust á Suðurlandi urðu undir Húsmúla, þar voru 43 skjálftar staðsettir, langflestir undir einum að stærð en sá stærsti mældist 1,5 …
Monthly Archive: janúar 2012
Molar um málfar og miðla 807
Í fréttum Stöðvar tvö (05.01.2012) sagði fréttamaður og hafði eftir forseta ASÍ að efnahagslegar forsendur samninganna væru að standast ágætlega. Hún er þrálát er-að sóttin. Þarna hefði til dæmis mátt segja að efnahagslegar forsendur samninganna hefðu staðist ágætlega. Í sama fréttatíma var sagt frá miklum rigningum í Evrópu og talað um miklar rigningar þar á …
Molar um málfar og miðla 806
Molavin sendi þetta: ,,Stormurinn, sem reið yfir í gærnótt… sagði í kvöldfrétt á Stöð-2. (5.1.12) Á fréttakonan þar við storminn, sem reið yfir í nótt eða í fyrrinótt? Ég kannast ekki við orðið gærnótt. Kannski er þetta angi af því barnamáli, sem hefur rutt sér til rúms á fréttastofum. Er enginn fullorðinn á vakt?’’ – …
Molar um málfar og miðla 805
Ýmislegt einkennilegt mátti heyra í fréttum Stöðvar tvö á þriðjudagskvöld (03.01.2012). Þar var sagt frá vatnstjóni í húsi í Reykjanesbæ með þeim orðum að sjóðandi heitt vatn hefði lekið um húsið. Betra hefði verið að segja að sjóðandi heitt vatn hefði flætt um húsið enda var reiknað með að tæki nokkra daga (?) að dæla …
Molar um málfar og miðla 804
Ótrúlegt var að hlusta á það í fréttum Stöðvar tvö (03.01.2012) hvernig borgaryfirvöld í Reykjavík þvælast fyrir og tefja að ráðist verði í löngu tímabærar lagfæringar á skúraklasanum frá stríðsárunum sem hýsir farþegaafgreiðslu innanlands- og millilandaflugs á Reykjavíkurflugvelli. Hreint ótrúlegt. Borgaryfirvöld hafa dregið það í átta mánuði að afgreiða einfalt mál. Þetta er ámælisverð stjórnsýsla …
Páll Magnússon sendir mér línu
Páll Magnússon útvarpsstjóri sendi mér þessar línur síðdegis í dag (03.01.2012) Sæll Eiður Nú ætla ég mér ekki þá dul að hefja rökræður við þig, en höfum samt eitt alveg á hreinu: Ef fjöldamorðin í Noregi og fórnarlömb þeirra væru höfð í flimtingum í Áramótaskaupi þætti mér það jafn forkastanlegt og þér. Ég er þeirrar …
Molar um málfar og miðla 803
Á öðrum degi ársins tók Molaskrifari eftir þeirri breytingu í dagskrá morgunútvarps Rásar tvö hjá þeirri ágætu útvarpskonu Sigurlaugu M. Jónasdóttur að morgunbæn var flutt áður en veðurfregnir voru sagðar frá Veðurstofu Íslands klukkan 06 40. Þetta er rökrétt og skynsamleg breyting. Það var ágætt hjá Ríkissjónvarpinu að sýna okkur Nýárstónleikana í Vín, en auðvitað …
Bessastaðarefskák 2012
Ólafur Ragnar sagði ekki afdráttarlaust í áramótaávarpi sínu að hann væri að hætta Hann lokaði ekki í hálfa gátt. Hann skildi bara eftir smáglufu. Hann var eiginlega að biðja þjóðina að skora á sig að halda áfram. Og Sögukórinn er byrjaður að syngja. Moggi mun taka viðlagið. Ólafur Ragnar sýnir þjóðinni óvirðingu með því að …
Molar um málfar og miðla 802
Gleðilegt ár ! Molaskrifari nennir ekki að hafa miklar skoðanir á Áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins. Fannst það heldur þunnt og ekki mjög fyndið. Það sem átti að vera fyndið um Sjálfstæðisflokkinn einkenndist fremur af illkvittni en fyndni.. En annað tók þó út yfir allan þjófabálk í Skaupinu. Það var að skopast skyldi að fjöldamorðunum í Útey í …