Monthly Archive: október 2012

Molar um málfar og miðla 1038

Prófessor emerítus, Helgi Haraldsson í Osló, fær þakkir fyrir þessa hugleiðingu: ,,Til gamans þessi þankabrot: „gegnum tíðina“ Skelfing finnst mér þetta lágkúrulegt orðatiltæki! Þessu verður ekki útrýmt héðan af, látum svo vera. Hitt er verra, að „gegnum tíðina“ virðist hafa bolað burt skörulegu málfari á borð við í tímans rás lengi vel um langan aldur …

Lesa meira »

Þyngstu rökin

Þyngstu og veigamestu röksemdirnar sem ég hef séð fyrir því réttlætanlegt sé að valda óafturkræfum skemmdum á hraundjásninu Garðahrauni/Gálgahrauni með allsendis óþarfri vegarlagningu er að finna í Morgunblaðinu í dag ( 19.10.2012). Þar segir í aðsendri grein: ,,Það er nú einu sinni svo að útsýnis um okkar fagra land njóta flest okkar oftast út um …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1037

Fyrrum heimili Sævars Karls til sölu, segir í fyrirsögn á svokölluðu Smartlandi á mbl.is sem betur er þekkt fyrir annað en vandað málfar. Hér er ekki átt við að verið sé að selja heimili heldur hús. Eitt er hús. Annað er heimili. Tvö dæmi úr heldur klaufalega þýddri frétt á mbl.is (17.10.2012). Þar segir að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1036

Molalesandi sendi þetta fyrir fáeinum dögum: ,,Ég mæli með að þú lesir greinina um „Bakarí heimsborgarans“ á bls. 6 í Landi og sögu, fylgiriti Morgunblaðsins í gær (laugardag 13.10.2012). Aldrei áður hef ég séð jafn illa skrifaða grein í Morgunblaðinu,” Molaskrifari skoðaði umrædda grein, sem er hreinræktuð auglýsing- ekki blaðagrein, – tekstreklame, eins og Danir …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1035

Prófessor emeritus, Helgi Haraldsson, í Osló sendi Molum þetta ágæta bréf: ,, ,,Sumir stjórnmálamenn eru konur og sumar konur eru stjórnmálamenn“. Það er hverju orði sannara, að ,,konur eru líka menn“. Þannig hefur íslensk tunga litið á frá upphafi. Dæmi: Grettla 1034: Þá sáu þeir ríða þrjá menn neðan eftir dalnum. Var einn í litklæðum. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1034

Tekjuhlið bænda farin þetta árið, segir í fyrirsögn á mbl.is (13.10.201). Betra hefði að mati Molaskrifarað segja til dæmis: Tekjutap hjá bændum …., eða taprekstur hjá bændum ….. Bústaðarvegur er nýtt götunafn í Reykjavík á mbl.is (13.10.2012). Bústaðavegur er í Reykjavík og heitir eftir bænum Bústöðum þar sem búið var forðum tíð. Webber tók ráspólinn, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1033

  Þeir sem fylgjast með erlendum sjónvarpsstöðvum vita að norrænar og breskar stöðvar sýna í viku hverri fréttaskýringaþætti  um erlend málefni. Þessar myndir eru  ýmist um þróun mála í Evrópu eða í fjarlægari heimshlutum. Þessar stöðvar sýna líka heimildamyndir um samtímasögu og sögu liðinnar aldar og liðinna alda. Hversvegna sýnir íslenska Ríkissjónvarpið nær aldrei efni …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1032

 Glöggur Molalesandi bendir á frétt (10.10.2012)  á pressan.is http://www.pressan.is/Frettir/Lesa_Erlent/selur-drap-hund   og segir:  ,,Mér þykja fréttir á Pressunni oftar en ekki klaufalega skrifaðar, einkum þýddar fréttir. Reyndar hefði ég ekki nennt að agnúast út í þessa frétt nema fyrir það orðalag að hundurinn hafi látist. ·         Hundurinn „lést“.·         Eru veiðihundar gæludýr?·         „Samkvæmt manninum …“·         „… dró hann …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1031

Hagur heimilanna vænkaðist í fyrra sé að marka nýjar tölur Hagstofunnar, sagði fréttamaður Ríkisútvarpsins (09.10.2012). Það er auðvitað alveg rétt hjá Ríkisútvarpinu að slá varnagla varðandi tölur sem koma frá Hagstofunni. Það er alls ekki víst að sé neitt að marka þær. Ef til vill væri rétt að leggja Hagstofuna niður. Rétt er að taka …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 1030

Helgi Haraldsson prófessor emeritus í Osló sendi Molum eftirfarandi undir fyrirsögninni: Til gamans(?) Undarleg notkun viðtengingarháttar hefur færst í vöxt á seinni tímum. Hér eru nokkur sýnishorn: Óskað eftir ofsóknum í Ríkisútvarpinu: Kristnir sæti ofsóknum í Ísrael: http://www.ruv.is/frett/kristnir-saeti-ofsoknum-i-israel Erlent | mbl | 24.5.2012 | 16:57. Hvatt til heimtufrekju: Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur Mbl. …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts