Í fréttum Ríkissjónvarps (26.09.2012) var sagt frá flóðum í Englandi og skemmdum af þeirra völdum. Sögð var hætta á því að fjölbýlishús hryndi … þar sem vatnselgur gróf undan grunninum. Hér hefði verið betra og skýrara að segja að vatnselgur hefði grafið undan undirstöðum hússins. Ef til vill er það svolítill mælikvarði á efnahagsástandið að …
Monthly Archive: september 2012
Molar um málfar og miðla 1019
Ríkissjónvarpið gerði tilkynningu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fín skil í fréttum í kvöld ( 27.09.2012). Þetta var smekklega gert hjá nöfnu hennar Hjaltadóttur. Jóhanna komst afar vel frá sínu. Sjaldan séð hana glansa eins og hún gerði í kvöld. Eftir að hafa tekið þessa ákvörðun mun hún blómstra sem aldrei fyrr það sem lifir kjörtímabilsins. Hún …
Molar um málfar og miðla 1018
Molalesandi þakkar þessa pistla og skrifar á þessa leið (24.09.2012): ,,Ég hlustaði á hádegisfréttir Ríkisútvarpsins í dag, 24. september 2012. Þar var frétt af aðalmeðferð í máli Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, gegn Seðlabankanum. Þar var ítrekað talað um verjanda Más. Hið rétta er að sjálfsögðu að ekki er talað um verjanda í einkamálum. Það er aðeins …
Molar um málfar og miðla 1017
Aðstandendur Kastljóssins eiga heiður skilinn fyrir að fletta ofan af Skýrr/Advania hneykslinu, sem verður ótrúlegra með hverjum deginum sem líður. Við erlendar sjónvarpsstöðvar mundu 15 til 20 manns eða þaðan af fleiri vinna að rannsókn og framsetningu svona máls. Það er eiginlega kraftaverk hvað fámennt starfslið Kastljóssins hér hefur gert til að fletta ofan af …
Molar um málfar og miðla 1016
Sjónvarp og útvarp eru áhrifamiklir miðlar. Það var vægast sagt óheppilegt hvernig Ríkisútvarpið flutti okkur frétt um rannsóknir á erfðabreyttum matvælum á föstudaginn (21.09.2012) Nánast var sagt berum orðum að erfðabreyttur maís væri krabbameinsvaldur. Komið hafa fram öflug andmæli frá vísindamönnum víðsvegar í veröldinni gegn tímaritsgreininni og rannsókninni sem frétt Ríkisútvarpsins byggðist á , einnig …
Stundum ofbýður manni
Stundum ofbýður manni. Mörður Árnason, alþingismaður, skrifar grein í Fréttablaðið í dag (24.09.2012) og segir: ,,Reykvíkingar lýstu í almennri atkvæðagreiðslu 2001 þeim vilja sínum að Vatnsmýrarvöllur (innskot: Reykjavíkurflugvöllur) yrði lagður af, og borgarstjórn samþykkti síðan aðalskipulag þar sem önnur flugbrautin fer 2012, hin 2014.”. Hugum að staðreyndum málsins. Skoðanakönnun fór fram um framtíð flugvallarins 21. …
Molar um málfar og miðla 1015
Auk þess sem samsetning sjúklinganna hafi breyst, var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (20.09.2012). Betra hefði verið að segja: Auk þess sem sjúklingahópurinn hafi breyst. Það var gaman að hlusta á þá Árna Pál og Illuga í Silfri Egils (23.09.2012) . Sögðu báðir margt af skynsemi. Illugi gaf ekkert út á ummæli formanns síns að slíta …
Molar um málfar og miðla 1014
Af mbl.is (19.09.2012): Björn Jónsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdarstjóri(!) hjá Ísfugli, en félagið var nýlega keypt af Jóni Magnúsi Jónssyni eiganda Reykjabúsins, sem er stærsti innlagnaraðili til Ísfugls. Hér gerir óþörf þolmynd merkinguna óljósa. Keypti Jón félagið eða keypti einhver félagið af Jóni? Eins og nær alltaf hefði germynd verið betri: …, en Jón …
Molar um málfar og miðla 1013
Molavin sendi eftirfarandi (18.09.2012): ,,Pressan segir okkur: „Októberfest á Íslandi var slaufað með stæl í nótt, en yfir 2000 gestir voru mættir í tjaldið sem sett var upp sérstaklega fyrir hátíðina.“ Síðan er upptalning á allri þeirri skemmtun, sem fram fór og var hún þó nokkur þrátt fyrir að hætt hafi verið við októberhátíðina, ef …
Molar um málfar og miðla 1012
Einar Kr. sendi Molum eftirfarandi bréf (16.09.2012): ,,Á mbl.is 16.9. er frétt með fyrirsögninni „Vaknaði ekki þrátt fyrir sáran barnsgrát“ og í fréttinni segir enn fremur að lögreglan hafi fengið tilkynningu um „mikinn barnsgrát“. Menn vakna ekki við mikinn grát heldur grátur. Menn minnast ekki grátsins heldur grátursins eða hins sára gráturs (ekki gráts). Orðið …