Markið hefði ekki að telja vegna rangstöðu,var sagt í íþróttafréttum Stöðvar tvö (17.10.2010). Betra hefði verið: Markið var ógilt vegna rangstöðu. Í sama fréttatíma var sagt um tiltekinn leikmann: …. lék á öll hljóðfærin og skoraði tvö mörk. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Lék á öll hljóðfærin ??? Í fréttatíma Stöðvar tvö (17.10.2010) var sagt …