Þegar farið er í ferðalag er nauðsynlegt að vita hvert á að fara og hvaða leið er skynsamlegast að velja. Á þessu flaskaði Alþingi Íslendinga. Nefndin var undir forystu VG leidd inn á pólitíska hefndarslóð í skjóli úreltra laga, sem segja annað réttlæti gilda fyrir ráðherra en aðra borgara. Skúmaskotapólitík á ekki heima á Alþingi. Orð …
Monthly Archive: september 2010
Molar um málfar og miðla 417
Úr dv. is (27.09.2010): …þegar hann ók einu af farartækjum fyrirtækis síns fram af klettabjargi. Að tala um að aka fram af klettabjargi er bull. Rétt hefði verið að tala um að aka fram af klettum, eða að aka fram af bjargbrún. Meira úr dv.is sama dag: Deilur innan forystusveitar uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks hefur orðið til …
Molar um málfar og miðla 416
Úttekt Svavars Halldórssonar á hugsanlegum afdrifum landsdómsmála á Alþingi var skýr og vel fram sett í fréttum Ríkissjónvarps (26.09.2010). Sama má segja um samantekt um fyrirhugaða fangelsisbyggingu. Ótrúlegt hvernig það mál hefur velkst í kerfinu árum saman án þess að nokkuð gerðist. Í þriggja línu feitletraðri ,tveggja dálka fyrirsögn í Morgunblaðinu (27.09.2010) segir: Segir samninga …
Molar um málfar og miðla 415
Í fréttatíma Stöðvar tvö (25.09.2010) var sagt: Hann segist viljugur að veita Íslandi ráð…. Betra hefði verið: Hann segist fús til að veita Íslandi ráð. Eða, hann segist reiðubúinn að veita Íslandi ráð. Góðvinur Mola austur í Moskvu sendi eftirfarandi: „Beckham spilaði í 90 mínútur í nótt“ segir visir.is. Hið rétta er auðvitað að hann lék …
Molar um málfar og miðla 414
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (24.09.2010) var sagt frá lokum hvalvertíðar. Sagt var um langreyði, sem komið var með að landi í Hvalfirði: Lokið er við að flensa hann. Hvalaheitið langreyður er kvenkynsorð. Þessvegna hefði átt að segja, að lokið væri við að flensa hana. Þetta hefur víst verið nefnt hér áður. Fréttastofa Ríkisútvarpsins er svo föst í …
Molar um málfar og miðla 413
Þrátt fyrir allt leynist ýmislegt gott innan um íhalds- og afturhaldsbullið á ÍNN. Ingvi Hrafn sagði hlýlega og fallega frá erfiðum veikindum Jóns Arnar bróður síns, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í Regina Sask. í Kanada. Þetta var vel gert ,Ingvi Hrafn, og snart alla, sem þekkja þetta góða fólk. Vonandi fær Jón Örn góðan bata. Við …
Molar um málfar og miðla 412
Úr dv.is (22.09.2010): …og vantar stjórnarflokkunum aðeins tvö sæti til að tryggja sér hreinan meirihluta á sænska þinginu. Þetta köllum við íhaldsmenn um málfar þágufallssýki, en reiðarekssinnar telja þetta rétt mál og líklega vandað orðalag. Í anda þess að allt sem sagt er, – sé rétt. Í fréttum Stöðvar tvö (22.09.2010) var sagt: Drengurinn var klæðalítill… Þetta …
Molar um málfar og miðla 410
Svolítið villandi fyrirsögn var í mbl. is (21.09.2010) 100 ár síðan kona var tekin af lífi í Virginíu. Þegar fréttin er lesin, kemur í ljós, að fyrirhugað er að taka konu af lífi í Virginíu, en kona var síðast tekin af lífi þar fyrir hundrað árum. Fyrirsögnin var ekki röng, en horft var framhjá aðalefni …
Molar um málfar og miðla 409
Í fréttum Ríkissjónvarpsins (20.09.2010) var talað um bavarískan prins (e. Bavarian). Orðið bavarískur er ekki til í íslensku. Sá sem er frá Bæjaralandi, eins og hér var um rætt, er bæverskur. Nýir fréttamenn falla í gamlar gryfjur vegna þess að enginn segir þeim til eða les yfir það sem þeir skrifa. Stundum hefur verið vikið hér …
Molar um málfar og miðla 408
Fyrir stundu lyftu knattspyrnukonur Vals 100. titli félagsins. Svona tekur rithöfundur til orða á bloggsíðu sinni. Molaskrifari hefur aldrei heyrt þetta orðalag, en giskar á að rithöfundurinn eigi við að knattspyrnukonurnar hafi fært félagi sínu hundraðasta titilinn. Þess ber að geta sem vel er gert. Heimildamyndin um Sesselju Sigmundsdóttur á Síóheimum ,sem Ríkissjónvarpið sýndi 19.09.2010 var …