Í fréttum Stöðvar tvö (20.10.2010) sagði fréttamaður: …. en tæplega helmingur þess fjárhæðar var veittur að láni… Þeirrar fjárhæðar, – að sjálfsögðu. Fréttamönnum,sem skrifa svona texta á ekki að hleypa að hljóðnema, nema einhver sæmilegur íslenskumaður hafi áður lesið textann. Hingað eru að streyma fjórir milljarðar fjár, sagði Ásmundur Einar Daðason stórfjárbóndi og Alþingismaður í Kastljósi …