Hvenær ætla fjölmiðlamenn að spyrja hina sjálfskipuðu talsmenn svokallaðra Hagsmunasamtaka heimilanna beittra og meitlaðra spurninga um samtökin og starfsemi þeirra ? Við eigum að fá að vita fulltrúar hverra þeir eru og fróðlegt væru að þeir gerðu almenningi grein fyrri eigin skuldastöðu. Eins og er gleypa fjölmiðlar allt hrátt,sem frá þessu fólki kemur og marklaus …
Monthly Archive: október 2010
Molar um málfar og miðla 434
Það er óvönduð fréttamennska, þegar meira er fullyrt í fyrirsögn eða inngangi fréttar, en fram kemur í fréttinni sjálfri. Ríkissjónvarpið gerði sig sekt um þetta (17.10.2010) Sagt var í fréttayfirliti og inngangi fréttar um fyrirhugaða fjölgun áfangastaða og stækkun flugflota Icelandair , að þessi áform væru í uppnámi vegna áætlana um gjaldahækkanir á Keflavíkurflugvelli. Síðan var rætt …
Molar um málfar og miðla 433
Markið hefði ekki að telja vegna rangstöðu,var sagt í íþróttafréttum Stöðvar tvö (17.10.2010). Betra hefði verið: Markið var ógilt vegna rangstöðu. Í sama fréttatíma var sagt um tiltekinn leikmann: …. lék á öll hljóðfærin og skoraði tvö mörk. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Lék á öll hljóðfærin ??? Í fréttatíma Stöðvar tvö (17.10.2010) var sagt …
Molar um málfar og miðla 431
Gaman var að hlusta Árna Þórarinsson í Kiljunni (13.10.2010). Hann er einstaklega vel máli farinn. Fáðu fleiri slíka til þín, Egill. Fékk hún og dóttir hennar… sagði fréttamaður Stöðvar tvö (13.10.2010). Molaskrifari hefði hér talið eðlilegra að segja: Fengu hún og dóttir hennar… Í sama fréttatíma var sagt: Í hverju lífeyrissjóðir mega fjárfesta í.. Þarna …
Molar um málfar og miðla 432
Úr mbl.is (14.10.2010): ….að það þyrfti fyrst og fremst að huga að fólki á aldrinum frá 25 til 40 ára, sem keyptu sér húsnæði á árunum fyrir hrun . Fólk keyptu sér ekki húsnæði. Fólk keypti sér húsnæði. Ef sagt hefði verið – þeim sem keyptu sér húsnæði, væri setningin rétt. Prýiðlegur er pistill í Lesbók Moggans (16,10.2010) …
Molar um málfar og miðla 430
Stjórnendur Ríkissjónvarpsins vita að margir fylgjast með knattspyrnuleikjum í beinni útsendingu. Ekki síst börn og ungmenni. Það er ámælisvert að Ríkissjónvarpið skuli punda ólöglegum áfengisauglýsingum inn á heimili landsins rétt áður en leikurinn hefst, tvisvar sinnum í hálfleik og svo í leikslok. Þetta segir heldur dapurlega sögu um þessa stofnun í almannaeigu. Svo er spurt: …
Molar um málfar og miðla 430
Stjórnendur Ríkissjónvarpsins vita að margir fylgjast með knattspyrnuleikjum í beinni útsendingu. Ekki síst börn og ungmenni. Það er ámælisvert að Ríkissjónvarpið skuli punda ólöglegum áfengisauglýsingum inn á heimili landsins rétt áður en leikurinn hefst, tvisvar sinnum í hálfleik og svo í leikslok. Þetta segir heldur dapurlega sögu um þessa stofnun í almannaeigu. Svo …
Molar um málfar og miðla 429
Í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var sagt: Það er enginn bilbugur í ykkur. Málvenja er að segja, að ekki sé bilbugur á einhverjum. Og er sannarlega engin ástæða til að breyta því. Bilbugur er „sveigja (á fylkingu), undanhald; undanlátssemi, hik; ótti (í bardaga)“ (Mergur málsins, dr. Jón G. Friðjónsson bls. 63) Í sama fréttatíma talaði fréttamaður …
Molar um málfar og miðla 428
Í fjögurfréttum Ríkisútvarpsins (08.10.2010) var talað um að byggja heimili. Á íslensku tölum við um að byggja hús. Við byggjum ekki heimili. Fólk stofnar hinsvegar heimili, þegar það fer að búa. Við þetta bætist eftirfarandi frá Molavin: „Heimili Herberts á uppboð“ segir á forsíðu Eyjarinnar og er þar vitnað í DV frétt, sem minnist þó ekkert …
Molar um málfar og miðla 427
Í áttafréttum Ríkisútvarpsins (09.10.2010) sagði fréttamaður: Þeirra á meðal Barack Obama,sem vann friðarverðlaunin í fyrra. Ekki kann Molaskrifari að meta þetta orðalag. Barack Obama hlaut friðarverðlaunin í fyrra. Þeim er úthlutað án þess að um þau sé keppt. Sami fréttamaður sagði, að ríkisstjórn Frakklands vonaðist til að eftirlaunamálið í heild sinni hafi verið ráðið til …