Í fyrirsögn í Fréttatímanum (18.11.2011) er talað um listarstol, – á að vera lystarstol. Það fer lítið fyrir prófarkalestri á þeim bæ þar sem svona villa kemst inn í fimm dálka fyrirsögn. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (19.11.2011) var talað um víðtækt lið lögreglu- og sérsveitarmanna … Betur hefði farið á því að tala um fjölmennt lið …
Monthly Archive: nóvember 2011
Molar um málfar og miðla 769
Hannes Hólmsteinn Gissurarson notaði minningargrein sem hann skrifaði um Matthías Á. Mathiesen fyrrverandi ráðherra til að tala illa um Emil Jónsson fv. ráðherra og forystumann Hafnfirðinga í áratugi. Í leiðara Morgunblaðsins þar sem Matthíasar var minnst að verðleikum og vikið að því er Matthías, nýgræðingur í pólitík felldi Emil í kosningum 1959. Í leiðaranum var …
Molar um málfar og miðla 768
Í fréttum Stöðvar tvö (15.11.2011) var tvísagt: .. á aðfaranótt föstudags. Í báðum tilvikum hefði verið betra að sleppa forsetningunni og segja aðeins: … aðfaranótt föstudags. Í fréttum Ríkissjónvarps sama kvöld var talað um að kaupa upplagið upp. Nægt hefði að segja: … að kaupa upplagið. Gaman var að sjá barnaskara fylla Eldborgarsalinn í Hörpu …
Molar um málfar og miðla 767
Það var að verðleikum að rithöfundurinn Kristín Marja Baldursdóttir skyldi hljóta verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Molaskrifari hefur lesið allar skáldsögur hennar. Hún skrifar hrífandi texta. Til hamingju! Ég lýsi allri ábyrgð á þessum tilvonandi lögum á herðar ríkisstjórnarinnar, sagði þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi Íslendinga á degi íslenskrar tungu. Talað er …
Icelandair undirbýr kirkjubyggingu
Það var sannarlega fréttnæmt að fulltrúi flugfélagsins Icelandair hefði mætt á Kirkjuþingi til að reka áróður fyrir því að byggð yrði í Skálholti eftirlíking af miðaldakirkju. Enn furðulegra var að heyra að þetta ætti að kosta litlar 530 milljónir og aðgangseyrir ætti að standa undir byggingarkostnaði og rekstri. Það hlýtur að teljast mikilvæg stefnubreyting hjá …
Molar um málfar og miðla 766
Í dag, 16. nóvember, er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Dagurinn er helgaður tungunni, dagur íslenskrar tungu. Allir dagar eiga að vera dagar íslenskrar tungu. Úr mbl.is (13.11.2011): …. en barnið var næstum því búið að kafna þegar blautklútur festist í hálsinum á því. Næstum því búið að kafna? Næstum kafnað, hefði verið betra orðalag í frásögn …
Molar um málfar og miðla 765
Viðtal Egils í Silfrinu í gær við írska prófessorinn dr. Kirby frá háskólanum í Limerick var með athyglisverðasta efni sem Molaskrifari lengi hefur séð í Ríkissjónvarpinu. Takk fyrir það, Egill. Þar kom ótrúlega margt athyglisvert fram um hvað er líkt og ólíkt kreppu og hruni í Írlandi og á Íslandi. Eftirtektarvert hvernig írskir kjósendur refsuðu …
Molar um málfar og miðla 764
Oft er gott og áhugavert efni í Kastljósi Ríkissjónvarpsins. Stundum mjög gott, ekki síst á stundum er kafað er ofan í umdeild mál. Viðtal og umfjöllun um systurnar ungu sem haldnar eru sjaldgæfum hrörnunarsjúkdómi (11.11.2011) var gott efni. En í sama þætti var viðtal við tvo leikara, svokallaða uppistandara sem var svo dæmlaust langdregin og …
Til umhugsunar um helgina
Til umhugsunar um helgina: Ótrúlega margir ökumenn misnota bílastæði sem eru sérmerkt. fötluðum. Þar mega þeir einir leggja sem hafa skírteini þar um í glugga bílsins. Framhleypinn sem ég er, geri ég stundum athugasemdir við þá sem leggja ólöglega í þessi stæði.. Síðast á miðvikudaginn við Hagkaup í Garðabæ. Ökumaðurinn beið í bílnum. – Já, …
Molar um málfar og miðla763
Orðið þágufallssýki sem margir reiðareksmenn amast við hefur lengi verið notað. Nú er ef til vill tímabært að tala um nefnifallsýki því oft virðast fjölmiðlamenn hræðast beygingar og vilja hafa allt í nefnifalli. Dæmi um þetta var í níufréttum Ríkisútvarps (09.11.2011), en þá var sagt um stjórnmálaástandið í Grikkklandi : Talið er að (G.P.) fráfarandi …