Monthly Archive: janúar 2012

Molar um málfar og miðla 828

Molaskrifari þreytist ekki á að minna á að Ríkissjónvarpið okkar er daglegur lögbrjótur með purkunarlausum áfengisauglýsingum. Síðastlið sunnudagskvöld, í auglýsingatímanum á undan Landanum, voru tvær áfengisauglýsingar. Fyrst var auglýstur danskur bjór í auglýsingu frá farmiðasalanum Iceland Express en síðan kom önnur auglýsing fyrir danskan bjór. Leikurinn var svo endurtekinn á mánudagskvöld, með enn meiri tilþrifum. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 827

Molavin sendi eftirfarandi (28.01.2012) : ,,Þetta er orðrétt úr frétt Fréttablaðsins á visir.is. Rétt er að geta þess að fréttin er að öllu öðru leyti vel skrifuð: …lífshættulegan erfðafræðilegan sjúkdóm sem lýsir sér í óstöðvandi blóðnasi. Árangurslausar tilraunir læknanna við að stöðva blóðnasi stúlkunnar, sem er fjögurra ára gömul, voru farnar að valda þeim áhyggjum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 826

Orðavin sendi Molum eftirfarandi (27.01.2012): ,,Ég er alveg sáttur við að nota íslenzka orðið ,,streita“ sem þýðingu á enska orðinu ,,stress“. Og mér finnst skiljanlegt að fólk, sem verður fyrir áfalli, finni fyrir streitu vegna þess. Og, þótt mér þyki orðið ,,áfallastreita“ ekki fallegt, þá get ég sætt mig við það. En hvað í ósköpunum …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 825

Úr Fréttablaðinu (26.01.2012): Þá er komið að því sem Baldri og verjanda hans þykir sérstaklega grunsamlegt og þeir sáu sérstaka ástæðu til að ljá máls á fyrir dóminum. Sá sem þetta skrifaði heldur greinilega að orðtakið að ljá máls á þýði að vekja athygli á. Svo er ekki. Að ljá máls á, þýðir hinsvegar að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 824

Það eru góðar fréttir að Ríkissjónvarpið skuli ætla að opna nýja sjónvarpsrás á næstu misserum þar sem meðal annars verður hægt að sýna íþróttakappleiki án þess að umturna venjulegri dagskrá sjónvarpsins. Samtímis verður mögulegt að sjá svokallað háskerpusjónvarp (Morgunblaðið 25.01.2012). Það er auðvitað mjög frumlegt að kalla þessa nýju rás,,viðburðarás”! Í Molum hefur jafnan verið …

Lesa meira »

Árás Ögmundar á opinbera starfsmenn

Árás Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á opinbera starfsmenn úr ræðustóli Alþingis er líklega einsdæmi. Ögmundur sagði: „Það er vegna þess að það er búið að fara með flugvélafarma, viku eftir viku eftir viku, mánuð eftir mánuð eftir mánuð, út til Brussel þar sem menn halda til á kostnað ríkisins. Þetta fólk ánetjast Evrópusambandinu og vill ólmt …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 823

Purkunarlaust auglýsir Ríkissjónvarpið bjór rétt fyrir kvöldfréttir klukkar sjö (24.01.2012). Getur enginn í stjórnkerfinu stöðvað þessa ósvinnu? Það er bannað að auglýsa áfengi. Það breytir engu þótt orðið léttöl birtist í sekúndu eða tvær á skjánum eftir að þar er lengi búin að vera mynd af Tuborg bjórflösku. Af hverju líðst stjórendum Ríkisútvarpsins þetta? Í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 822

Í morgunþætti Rásar (23.01.2012) sagði umsjónarmaður: … þegar fólk hittist í eigin líkama ! Líkast til átti hann við það þegar fólk hittist, – einnig hefði mátt segja þegar fólk hittist augliti til auglitis. Í sama þætti var talað um að falla frá ákæru á hendur Geirs H. Haarde. Hér átti ekki að vera eignarfall. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 821

Fyrr má nú rota en dauðrota. Fimm klukkustundir af handbolta voru á dagskrá sjónvarps ríkisins í gær (22.01.2012). Fimm klukkustundir! Barnatíminn, Stundin okkar, fauk út í buskann. Hvaða máli skipta börnin þegar handboltinn á í hlut. Það er um að gera að innræta þeim nógu snemma að ekkert skipti meira máli í veröldinni og lífinu …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 820

Enginn hefur lýst sprengjunum á hendur sér, var sagt í sjöfréttum Ríkisútvarpsins (20.1.2012) og á vef Ríkisútvarpsins um sprengjur sem sprungu í Londonderry á Írlandi. Þetta er auðvitað óhæft orðalag. Menn lýsa ekki sprengjum á hendur sér. Í áttafréttum útvarpsins var búið að lagfæra þetta og þannig tekið til orða að enginn hefði lýst árásunum …

Lesa meira »

Older posts «