Monthly Archive: desember 2016

Molar um málfar og miðla 2083

ENN EITT DÆMIÐ … Enn eitt dæmið um slaka málfræðikunnáttu mátti heyra í fréttum Ríkisútvarps , – og sjá á vefsíðu Ríkisútvarpsins (27.12.2016): ,,Karlmaður, sem grunaður er um að hafa haldið konu gegn hennar eigin vilja á heimili sínu og nauðgað henni, hefur verið gert að afplána 630 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar.     „ Karlmaður hefur ekki …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2082

Molaskrifari horfir ævinlega á veðurfréttir í sjónvarpinu. Mikill áhugamaður um veðurfar. Að öðrum veðurfræðingum ólöstuðum finnst honum Einar Sveinbjörnsson gera veðrinu best skil. Hann er bara of sjaldan á skjánum. Einar sýnir okkur jafnan hitastig í Færeyjum og sýnir eða nefnir hitann á Kanaríeyjum. Margir vilja gjarna vita af veðrinu á þessum stöðum. Ekki sakaði …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2081

ENN UM KOSNINGAR OG ATKVÆÐAGREIÐSLUR Það er með ólíkindum hvað sumum fréttamönnum gengur illa að greina á milli kosninga og atkvæðagreiðslna. Þetta hefur oft verið nefnt í Molum. Í áttafréttum að morgni Þorláksmessu var sagt í Ríkisútvarpinu: ,,Kosningu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um fordæmingu á landtöku ‚Ísraelsmanna á vesturbakka ….“Það var ekki verið að kjósa …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2080

AÐ VANDA MÁL SITT Kannski er það ekki lengur til siðs hjá sumum blaðamönnum að vanda mál sitt. Í Ljósvakapistli í Morgunblaðinu rétt fyrir jólin (22.12.2016) var skrifað: ,, Jóladagatöl hafa verið fastur liður hjá flestum börnum á þessum árstíma og var slíkt algjört ,,möst“ á mínum uppvaxtarárum“. Möst er ekki íszlenska , ,,möst“ er …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2079

  SÍBRJÓTUR Molavin skrifaði ( 22.12.2016): ,, „Síbrjótur dæmdur fyrir þjófnað og árás“ segir í fyrirsögn fréttar á vef Ríkisútvarpsins (22.12.). Það er gaman og gleðiefni þegar tekin eru upp lipur orð, gagnsæ og auðskiljanleg. Þetta orð, síbrjótur“ er liprara en síbrotamaður en segir það sama.“ Ágætis orð. Þakka bréfið, Molavin   STAFSETNING OG BEYGINGAR …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2078

SLYS Jakob R. Möller skrifaði Molum (20.12.2016): ,, Heill og sæll, Nú til dags sýnast hverskyns óhöpp kölluð slys. Var að hlusta á fréttir á Rás 1, þar var ítrekað vísað til „slyssins á Mosfellsheiði“ síðdegis. Ekkert var þó nefnt um það, að nokkur maður hefði meiðzt. Samkvæmt minni málvitund merkir slys, að einhver hafi …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2077

  ENSKAN ENN – HONEY MUSTARD ! Molaskrifari fór í matvöruverslun að kaupa sinnep, sem ekki er í frásögur færandi. Þar var úr mörgu að velja. Meðal annars var þar á boðstólum …. Alveg ekta Honey Mustard . Þetta var ekki erlend framleiðsla. Þetta var frá Akureyri. Framleiðandinn var M&M, Matur & Mörk, Frostagötu 3c, …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2076

ORÐRÓMAR OG AÐ FRJÓSA TIL BANA Málglöggur lesandi sendi Molum línu (18.12.2016). Hann  segir: „Á mbl.is laugardaginn 17. desember var talað um „orðróma“ ( í fleirtölu.) Er það ekki hreint orðskrípi? Þar var einnig talað um að einhver hefði „frosið til bana“. Segjum við ekki að lengur að „frjósa í hel“? Það þarf að herða …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2075

AÐ GRAFA SNJÓ Trausti sendi Molum eftirfarandi (14.12.2016): „Tólf ára dreng­ur lést í Greenwich í New York í dag en hann var að byggja snjó­virki þegar hann varð und­ir snjó­b­akka.“ Þetta er náttúrlega sorgleg frétt og ég vona að mér fyrirgefist þó ég spyrji: Hvað er snjóbakki? „Þá lést hinn 56 ára Dav­id Perrotto í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 2074

FYRIRHÖFN OG FJÁRMUNIR Þorvaldur skrifaði Molum (13.12.2016): ,,Sæll Eiður. Var að horfa á Kastljós þar sem rætt var við lögfræðing Lyfjastofnunar um eftirlit með svokölluðum lækningatækjum. Pilturinn sagði að setja þyrfti frekari „rísorsa“ (e. resources) í eftirlitið til að það mætti koma að gagni. Ekki átti hann íslenskt orð yfir hugtakið, en hefur trúlega átt …

Lesa meira »

Older posts «